A.15. Opinber grunnþjónusta og jöfnun aðgengis
Aðgerðin er í vinnslu | |
---|---|
Tengiliður
Sigríður Þorgrímsdóttir, Byggðastofnun - [email protected]
Fréttir
27.01.23 Aðsókn að Ísland.is jókst um 80%
Vefurinn Ísland.is hefur það markmið að auðvelda fólki að sækja stafræna þjónustu og þannig jafna aðgengi allra landsmanna að opinberri þjónustu.
Verkefnið
Markmið: Að aðgengi og þjónustustig opinberrar grunnþjónustu verði jafnað með bættum aðstæðum og tæknilausnum.
Stutt lýsing: Skilgreint verði aðgengi að opinberri grunnþjónustu. Einnig verði skilgreint lágmarksþjónustustig opinberrar grunnþjónustu fyrir dreifbýli þar sem of kostnaðarsamt getur þótt að veita þjónustuna. Jafnframt verði lagðar fram tillögur um tæknilega framkvæmd og jöfnun kostnaðar við að sækja einstaka þætti þjónustu á vegum ríkisins.
- Ábyrgð: Innviðaráðuneytið.
- Framkvæmdaraðili: Byggðastofnun.
- Dæmi um samstarfsaðila: Ráðuneyti og stofnanir, Samband íslenskra sveitarfélaga, landshlutasamtök sveitarfélaga og sveitarfélög.
- Tímabil: 2022–2023.
- Tenging við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Styður markmið 1, 10 og 11, einkum undirmarkmið 1.4, 10.2, 10.3, 10.4, 10.7, 11.1, 11.2, 11.3 og 11.a.:
- Tillaga að fjármögnun: 2 millj. kr. af byggðaáætlun